You are here: Home
Lifestyle
Food / Beverage
FOSS: Ný Kynslóð Drykkja
FOSS: Ný Kynslóð Drykkja
Foss er einn hollasti drykkurinn sem fáanlegur er á íslenskum markaði í dag.
FOR IMMEDIATE RELEASE
(Free-Press-Release.com) July 27, 2010 --
Nýjasta vatnsátöppunarverksmiðjan á Íslandi, Nordic Water er komin með nýja vöru á markaðinn, Foss Lime Twist sem er ókolsýrt vatn með lime- og sítrónukeimi. Einnig er boðið upp á hreint vatn, Foss Natural og innan skamms verða nýjar bragðtegundir í boði. Þessi náttúrulega Foss vatnslína er án sykurs, sætuefna, E-efna, rotvarnarefna og hitaeininga. Foss er ný kynslóð drykkja fyrir nýjan lífsstíl.
Foss er einn hollasti drykkurinn sem fáanlegur er á íslenskum markaði í dag. Ástæðan er sú að hann er án sykurs, sætuefna og rotvarnarefna. Hann er einnig með lágt sýrustig og fer vel með tennur. Foss Natural er með pH 8,8 og Foss Lime Twist er með pH 8,0. Bragðefnin eru 100% náttúruleg og skaðlaus og er nýr valmöguleiki fyrir þá sem hugsa um heilsu og heilbrigðan lífsstíl.
Hönnun á umbúðum og útliti er falleg, stílhrein og sérstök. Allar umbúðir eru 100% endurvinnanlegar og leitast er við að nota eins lítið af plasti og hægt er. Nordic Water er alltaf að leita að nýjum leiðum til að bæta umhverfið.
Hægt er að nálgast Foss vörulínuna í verslunum Hagkaupa og í betri verslunum og útsölustöðum um land allt.
Nordic Water átöppunarverksmiðjan er staðsett í Hafnarfirði og vatnið kemur úr Kaldárbotnum.
kolla@nordicwater.is
Where: Wolfenbuttel,Germany
Industry: Food & Beverage
Where: Guangzhou,China Pr
Industry: Food & Beverage
Where: Vienna,Austria
Industry: Food & Beverage
Post your news to the World.See you news here immediately. It's easy and free!
Create free account or Login.


